Google

Stefnur og reglur

Algengar spurningar

  1. Hvernig tryggir Google persónuvernd mína?
  2. Af hverju geymir Google gögn úr notkunarskrám leitarvéla?
  3. Af hverju eru notkunarskrár geymdar áður en þær eru gerðar nafnlausar?
  4. Hvernig fjarlægi ég upplýsingar um mig úr leitarniðurstöðum Google?
  5. Notast Google við fótspor?
  6. Hvað gerist þegar ósamræmi er milli laga um persónuvernd í mismunandi löndum?
  7. Hversu oft biðja yfirvöld ykkur um gögn um notendur?
  8. Hvernig kem ég fyrirspurn eða kvörtun varðandi persónuvernd á framfæri við Google?

Hvernig tryggir Google persónuvernd mína?

Við hjá Google erum mjög meðvituð um það traust sem notendur bera til okkar og þá skyldu okkar að tryggja persónuvernd þeirra. Við lítum svo á að persónuvernd byggist á gagnsæi og valfrelsi. Til að hjálpa þér að taka upplýstar ákvarðanir um þína eigin persónuvernd vinnum við að því að láta þig vita hvaða upplýsingum við söfnum þegar þú notar vörur okkar og þjónustu og hvernig við notum þær upplýsingar til að bæta þjónustuna. Við vinnum einnig að því að gefa þér markvissa valkosti um þær upplýsingar sem þú veitir Google og öðrum. Við hvetjum þig til að horfa á vídeóin okkar, lesa persónuverndarstefnu okkar og leita til hjálparmiðstöðva okkar til að fræðast nánar um persónuvernd á Google.

Af hverju geymir Google gögn úr notkunarskrám leitarvéla?

Við geymum þessi gögn af ýmsum ástæðum. Fyrst og fremst geymum við gögn til að bæta leitarniðurstöður okkar og tryggja öryggi kerfa okkar. Greining á gögnum úr notkunarskrám hjálpar forriturum okkar bæði að bæta leitarniðurstöður og byggja upp gagnlega og brautryðjandi þjónustu. Tökum ritvilluvörnina Google Spell Checker sem dæmi. Ritvilluvörn Google fer sjálfkrafa yfir leitarfyrirspurn notanda og kannar hvort algengasti ritháttur orðsins er notaður. Ef útreikningar okkar sýna að notandinn kunni að fá betri leitarniðurstöður með öðrum rithætti spyrjum við: „Áttirðu við: (algengari ritháttur)?“ Til þess að geta veitt þessa þjónustu rannsökum við gögnin í notkunarskrám okkar. Gögn úr notkunarskrám hjálpa okkur einnig að bæta leitarniðurstöður okkar. Þegar við sjáum að notendur smella á fyrstu leitarniðurstöðuna vitum við að okkur hefur tekist vel til, en ef þeir fara á næstu síðu eða breyta leitarfyrirspurninni erum við sennilega að gera eitthvað rangt. Gögn úr notkunarskrám hjálpa okkur einnig að koma í veg fyrir svik og aðra misnotkun á borð við vefveiðar, árásir með skriftum og ruslpóst af ýmsu tagi.

Af hverju eru notkunarskrár geymdar áður en þær eru gerðar nafnlausar?

Við gætum þess að hæfilegt jafnvægi sé á milli þeirra þátta þar sem togstreita skapast, svo sem persónuverndar notenda, öryggis kerfa og nauðsynlegrar nýsköpunar. Við teljum að réttu jafnvægi sé náð með því að gera IP-tölur nafnlausar að níu mánuðum liðnum og fótspor að átján mánuðum liðnum í notkunarskrám leitarvéla okkar.

Hvernig fjarlægi ég upplýsingar um mig úr leitarniðurstöðum Google?

Eins og allar leitarvélar endurspeglar Google efni og upplýsingar sem nálgast má á vefnum. Leitarvélar geta ekki fjarlægt efni af vefnum, þannig að þótt leitarniðurstöður séu fjarlægðar úr Google eða annarri leitarvél situr efnið sem niðurstöðurnar vísa til óbreytt eftir. Ef þú vilt fjarlægja eitthvað af vefnum ættirðu að hafa samband við vefstjóra svæðisins og biðja hann að gera breytingar. Þegar efni hefur verið fjarlægt af vefsíðu og skriðill leitarvélar Google hefur farið aftur á síðuna munu upplýsingarnar ekki lengur birtast í leitarniðurstöðum Google. Ef þú ert með áríðandi beiðni um að fjarlægja efni geturðu líka leitað frekari upplýsinga á hjálparsíðunni okkar.

Notast Google við fótspor?

Já, eins og flest vefsvæði og leitarvélar notast Google við fótspor til að bæta upplifun þína og veita þjónustu og auglýsingar. Fótspor hjálpa okkur að halda skrá yfir kjörstillingar þínar, til dæmis hvort þú vilt fá leitarniðurstöðurnar á ensku eða frönsku, eða hvort þú notar SafeSearch-síuna. Ef ekki væri notast við fótspor gæti Google ekki munað hvað mismunandi fólk vill. Við notum líka fótspor til að veita auglýsingar sem eiga betur við áhugasvið þín.

Flestir notendur vilja heldur ekki þurfa að stilla tölvuna sína í hvert skipti sem þeir skrá sig inn. Ef þú vilt ekki fá fótspor geturðu breytt vöfrunum þínum svo að þeir tilkynni þér þegar fótspor eru send en hafni fótsporum frá vissum vefsvæðum (eða öllum). Einnig er hægt að eyða fótsporum úr vafranum. Leitarvél Google virkar án þess að fótspor séu notuð en ef þau eru gerð óvirk tapast einhver virkni.

Hvað gerist þegar ósamræmi er milli laga um persónuvernd í mismunandi löndum?

Persónuvernd er mismunandi eftir löndum og ekki er samkomulag um staðlaða nálgun á slíkum málum. Persónuverndarstefnu Google er ætlað að vera ein skýr og altæk yfirlýsing á nálgun okkar á persónuvernd, og er meðferð okkar á persónuupplýsingum samkvæmt stefnunni ætlað að uppfylla ákvæði laga um allan heim.

Hversu oft biðja yfirvöld ykkur um gögn um notendur?

Eins og önnur tækni- og samskiptafyrirtæki fáum við fyrirspurnir frá ríkisstofnunum víða um heim um að veita upplýsingar um þá sem nota þjónustu okkar og vörur. Til að auka gagnsæi slíkra beiðna höfum við búið til verkfæri fyrir beiðnir yfirvalda, sem skráir fjölda beiðna sem við höfum fengið og tengjast að öllu jöfnu rannsóknum á afbrotum. Frekari upplýsingar um verkfærið og eðli beiðnanna er að finna í algengum spurningum um verkfæri fyrir beiðnir yfirvalda.

Hvernig kem ég fyrirspurn eða kvörtun varðandi persónuvernd á framfæri við Google?

Þú getur haft samband við okkur hvenær sem er með eyðublaðinu fyrir persónuvernd. Ef þú kýst það frekar geturðu sent okkur bréf:

Privacy Matters
c/o Google Inc.
1600 Amphitheatre Parkway
Mountain View, California, 94043
USA