03 Smjörkúkurinn by Brúðarbandið published on 2015-08-13T18:27:23Z Manifestó Brúðarandsins: Brúðarbandið vill meira paunk! Meira rokk! Fleiri konur að rífa kjaft uppá sviði! Fleiri konur að búa til hávaða í gegnum magnara! Brúðarbandið vill flegnari karlmannaskyrtur! Þrengri karlmannabuxnatísku! Fleiri grúppíur! Brúðarbandið vill minna kjaftæði! Brúðarbandið vill betri ríkisstjórn! Brúðarbandið vill demanta og perlur! Og ókeypis drykki á barnum! Brúðarbandið er á móti sérfræðingavæðingu samfélagsins! Brúðarbandið er fylgjandi því að fólk taki örlög sín í sínar eigin hendur og gerist sinn eiginn kóngur, sinn eiginn prestur! Brúðarbandið er fylgjandi því að að fólk semji sína eigin tónlist í staðinn fyrir að sitja bara kjurt og hlusta! Brúðarbandið vill meiri ást! Brúðarbandið vill fleiri sólarlög, skærari norðurljós, stærri rosabauga! Brúðarbandið vill bleikt vatn í allar sundlaugar landsins! Brúðarbandið vill fleiri brúðkaup fyrir alla! Brúðarbandið krefst þess að alþýða landsins sjái að sér og heimti sakleysi sitt aftur! Brúðarbandið veit að það mun enginn bjargvættur koma aðvífandi! Brúðarbandið veit að keisarinn er nakinn! Brúðarbandið veit að þeir sem gera einungis það sem þeir kunna eyða ævinni í að hjakka í sama farinu! Brúðarbandið krefst þess að innflutningstollar af bleikum varalit verði felldir niður! Brúðarbandið hefur ekki þolinmæði til að bíða eftir morgundeginum! Brúðarbandið er þegar orðið hluti af framtíðinni! Brúðarbandið mun hiklaust hefja máltíðina á eftirréttinum! Genre Brúðarbandið