Hildur Bjarnadóttir myndlistarmaður verður á morgun, sunnudag, klukkan 14.00 með leiðsögn um sýninguna Carnegie Art Award 2010 í Listasafni Íslands.
Sýningunni er ætlað að kynna norræna samtímamálaralist. Hildur mun einkum beina sjónum að þræðinum í málverkinu, og prjónuðum málverkum; að einstökum listaverkum og höfundum þeirra út frá tengslum þeirra við aðra listmiðla, svo sem textíl.
Bók með ljósmyndum af öllum verkunum, sem tekin voru til sýningar er sýningin var opnuð í Danmörku, er fáanleg í safnbúð Listasafnsins.