Fleiri en 563 þúsund manns hafa líkað við síðu fyrirsætunnar Örnu Báru Karlsdóttur á Facebook. Af Íslendingum eiga aðeins Björk, Sigur Rós og Of Monsters and Men fleiri aðdáendur á Facebook, samkvæmt lauslegri úttekt Nútímans. Til samanburðar þá hafa 388 þúsund manns líkað við spurningaleikinn QuizUp frá Plain Vanilla.
Arna Bára hefur setið fyrir á vegum tímaritsins Playboy síðustu ár. Hún er nú stödd á Jamaíka þar sem hún situr fyrir á myndum fyrir Playboy í Venesúela, Rúmeníu, Ísrael og Slóvakíu, samkvæmt vef DV. Í samtali við DV segir hún líf sitt vera endalaust ævintýri:
Það er verið að velja nokkrar stelpur til að vera viku lengur og þá á að færa okkur af hótelinu og í villu. Ég var beðin um að vera eftir. Er enn að reyna að ákveða mig hvort ég hafi tíma í það
Arna Bára nýtir Facebook-síðu sína til að leyfa aðdáendum sínum að fylgjast með ferðum sínum:
Hún hefur birt nokkrar myndir frá Jamaíka og virðist kunna vel við sig: