Hin 23 árs gamla Anastasiya Kvitko hefur verið kölluð svar Rússa við Kim Kardashian – en Anastasiya þessi er líkt og ameríska fyrirmyndin ágætlega í holdum og er ekki á þeim buxunum að tapa vigt.
Anastasiya er búsett nú í Miami en kemur upphaflega frá Kaliningrad – og var uppgötvuð sem módel aðeins 17 ára gömul.
Anastasiya er komin með 8,9 milljón fylgjendur á Instagram – og dreymir um að ná sömu hæðum og Kim Kardashian.
Aðspurð um hvað myndi valda hylli hennar hjá karlmönnum sagði hún:
„Ég held það sé vegna minna kvenlegu lína.“
Anastasiya þvertekur hins vegar fyrir að fara í nokkrar lýtaaðgerðir.
„Ég er sátt við mig – og finnst ég fullkomin eins og ég er.!