Lengsta brú landsins bíður örlaga sinna Kristján Már Unnarsson skrifar 11. september 2017 21:00 Skeiðarárbrú eftir að henni var lokað. Nýi vegurinn til vinstri. Öræfajökull í baksýn. Stöð 2/Arnar Halldórsson. Lengsta brú landsins, Skeiðarárbrú, bíður nú örlaga sinna eftir að hún var leyst af hólmi með nýrri Morsárbrú. Sú er innan við einn tíundi af lengd hinnar. Fjallað var um Skeiðarárbrú í fréttum Stöðvar 2 og rætt við Reyni Gunnarsson, rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Höfn, og Benedikt Ólason, verkefnisstjóra hjá Héraðsverki. Skeiðarárbrú er um 900 metra löng en í samanburðinum er nýjan brúin yfir Morsá óttaleg písl við hliðina, aðeins 68 metra löng. Eftir að Skeiðará breytti um farveg sumarið 2009 og flutti sig yfir í Gígjukvísl rann aðeins Morsá undir þetta mikla mannvirki. Því dugði minni brú, sem brúarflokkur Vegagerðarinnar lauk við í fyrrahaust, en Héraðsverk á Egilsstöðum lagði svo vegina að henni í sumar.Nýja brúin yfir Morsá. Gamla Skeiðarárbrúin til vinstri.Stöð 2/Arnar Halldórsson.Gamla Skeiðarárbrúin var sjálf orðin farartálmi, - einbreið með fimm útskotum. Starfsmenn Héraðsverks urðu reglulega vitni að umferðarhnútum á brúnni í sumar. Benedikt lýsir því að stundum hafi legið við handalögmálum bílstjóra. „Þrjátíu bílar stíflaðir uppi á henni og allt á öðrum endanum. Stundum hefur mann langað að heyra hvað menn segja. Það hafa verið ljótu lætin stundum.“Reynir Gunnarsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Höfn.Stöð 2/Arnar Halldórsson.Reynir hjá Vegagerðinni á Höfn segir gott að losna við Skeiðarárbrú. Hún hafi verið orðin mjög léleg, einkum timburverkið í henni, og komið að miklu viðhaldi. Vígsla Skeiðarárbrúar árið 1974 er einn stærsti viðburðurinn í samgöngusögu Íslands en með henni opnaðist hringvegurinn. Brúin mátti reglulega þola Skeiðarárhlaup og stóðst þau öll þar til í nóvember árið 1996 þegar hún rofnaði eftir Gjálpargosið í Vatnajökli. Hún var svo opnuð á ný eftir viðgerð. Skeiðarárbrú gæti auðvitað staðið áfram um langa framtíð og kannski fengið nýtt hlutverk sem risastór minnisvarði um loftlagsbreytingar og þannig haldið stöðu sinni sem lengsta brú á Íslandi. Annars myndi krúnan færast yfir til Borgarfjarðarbrúar. „Það er ekki endanlega búið að ákveða hvað verður gert við hana. Menn eru svona að spá í hvað verður gert,“ segir Reynir.Benedikt Ólason, verkefnisstjóri hjá Héraðsverki, stendur á Skeiðarárbrú með nýju Morsárbrúna í baksýn.Stöð 2/Arnar Halldórsson.Benedikt hjá Héraðsverki lýsir sinni skoðun með vísu: „Lögst í dvala, löng ein brú, sú lengsta í þessu landi. Hún er eins og hefðarfrú, ég held sé best hún standi.“Fjallað var um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og má sjá fréttina á mínútu 15:30 í fréttatímanum hér fyrir neðan. Tengdar fréttir Árnar horfnar og eftir standa gagnslitlar brýr Þrjár stórar brýr á Suðausturlandi hafa mætt þeim örlögum á undanförnum áratugum að verða gagnslitlar og jafnvel óþarfar vegna þess að árnar hurfu sem þær áttu að brúa. 2. nóvember 2013 19:09 Skeiðará komin yfir í Gígjukvísl „Við skjótum á að helmingurinn af Skeiðará sé farin yfir í Gígju,“ segir Jón Ragnarsson, starfsmaður Vegagerðarinnar á Höfn. 15. júlí 2009 03:30 Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Innlent Fleiri fréttir Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Sjá meira
Lengsta brú landsins, Skeiðarárbrú, bíður nú örlaga sinna eftir að hún var leyst af hólmi með nýrri Morsárbrú. Sú er innan við einn tíundi af lengd hinnar. Fjallað var um Skeiðarárbrú í fréttum Stöðvar 2 og rætt við Reyni Gunnarsson, rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Höfn, og Benedikt Ólason, verkefnisstjóra hjá Héraðsverki. Skeiðarárbrú er um 900 metra löng en í samanburðinum er nýjan brúin yfir Morsá óttaleg písl við hliðina, aðeins 68 metra löng. Eftir að Skeiðará breytti um farveg sumarið 2009 og flutti sig yfir í Gígjukvísl rann aðeins Morsá undir þetta mikla mannvirki. Því dugði minni brú, sem brúarflokkur Vegagerðarinnar lauk við í fyrrahaust, en Héraðsverk á Egilsstöðum lagði svo vegina að henni í sumar.Nýja brúin yfir Morsá. Gamla Skeiðarárbrúin til vinstri.Stöð 2/Arnar Halldórsson.Gamla Skeiðarárbrúin var sjálf orðin farartálmi, - einbreið með fimm útskotum. Starfsmenn Héraðsverks urðu reglulega vitni að umferðarhnútum á brúnni í sumar. Benedikt lýsir því að stundum hafi legið við handalögmálum bílstjóra. „Þrjátíu bílar stíflaðir uppi á henni og allt á öðrum endanum. Stundum hefur mann langað að heyra hvað menn segja. Það hafa verið ljótu lætin stundum.“Reynir Gunnarsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Höfn.Stöð 2/Arnar Halldórsson.Reynir hjá Vegagerðinni á Höfn segir gott að losna við Skeiðarárbrú. Hún hafi verið orðin mjög léleg, einkum timburverkið í henni, og komið að miklu viðhaldi. Vígsla Skeiðarárbrúar árið 1974 er einn stærsti viðburðurinn í samgöngusögu Íslands en með henni opnaðist hringvegurinn. Brúin mátti reglulega þola Skeiðarárhlaup og stóðst þau öll þar til í nóvember árið 1996 þegar hún rofnaði eftir Gjálpargosið í Vatnajökli. Hún var svo opnuð á ný eftir viðgerð. Skeiðarárbrú gæti auðvitað staðið áfram um langa framtíð og kannski fengið nýtt hlutverk sem risastór minnisvarði um loftlagsbreytingar og þannig haldið stöðu sinni sem lengsta brú á Íslandi. Annars myndi krúnan færast yfir til Borgarfjarðarbrúar. „Það er ekki endanlega búið að ákveða hvað verður gert við hana. Menn eru svona að spá í hvað verður gert,“ segir Reynir.Benedikt Ólason, verkefnisstjóri hjá Héraðsverki, stendur á Skeiðarárbrú með nýju Morsárbrúna í baksýn.Stöð 2/Arnar Halldórsson.Benedikt hjá Héraðsverki lýsir sinni skoðun með vísu: „Lögst í dvala, löng ein brú, sú lengsta í þessu landi. Hún er eins og hefðarfrú, ég held sé best hún standi.“Fjallað var um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og má sjá fréttina á mínútu 15:30 í fréttatímanum hér fyrir neðan.
Tengdar fréttir Árnar horfnar og eftir standa gagnslitlar brýr Þrjár stórar brýr á Suðausturlandi hafa mætt þeim örlögum á undanförnum áratugum að verða gagnslitlar og jafnvel óþarfar vegna þess að árnar hurfu sem þær áttu að brúa. 2. nóvember 2013 19:09 Skeiðará komin yfir í Gígjukvísl „Við skjótum á að helmingurinn af Skeiðará sé farin yfir í Gígju,“ segir Jón Ragnarsson, starfsmaður Vegagerðarinnar á Höfn. 15. júlí 2009 03:30 Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Innlent Fleiri fréttir Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Sjá meira
Árnar horfnar og eftir standa gagnslitlar brýr Þrjár stórar brýr á Suðausturlandi hafa mætt þeim örlögum á undanförnum áratugum að verða gagnslitlar og jafnvel óþarfar vegna þess að árnar hurfu sem þær áttu að brúa. 2. nóvember 2013 19:09
Skeiðará komin yfir í Gígjukvísl „Við skjótum á að helmingurinn af Skeiðará sé farin yfir í Gígju,“ segir Jón Ragnarsson, starfsmaður Vegagerðarinnar á Höfn. 15. júlí 2009 03:30