Skilmálar gilda um kynningarinneignir netauglýsinga:

  • Þú gætir átt rétt á kynningarinneign ef þú ert (a) nýr auglýsandi hjá Google Ads og birtir fyrstu auglýsinguna þína af fyrsta Google Ads-reikningnum þínum innan 14 daga áður en þú notar kynningarkóðann eða (b) ert núverandi viðskiptavinur Google Ads og virkjar nýjan eiginleika eða vöru á Google Ads eða virkjar óvirkan reikning aftur, líkt og Google tilgreinir á afsláttarmiðanum. Gildandi gjaldgengisskilyrði eru tilgreind í tilboðinu sem þú færð frá Google.
  • Auglýsendur verða rukkaðir fyrir allar auglýsingar umfram kynningarinneignina. Ef auglýsendur vilja ekki greiða aukagjald fyrir auglýsingar geta þeir tekið auglýsingar sínar úr birtingu hvenær sem er áður en upphæð kynningarinneignarinnar klárast. Auglýsendur fá ekki tilkynningu þegar kynningarinneignin klárast.
  • Þegar nauðsynlegri upphæð hefur verið eytt og/eða nauðsynlegum aðgerðum lokið, að því gefnu að öll gjaldgengisskilyrði séu uppfyllt, birtist inneignin yfirleitt á innheimtuyfirliti Google Ads-reikningsins þíns innan 35 daga.
  • Inneignin rennur út 60 dögum eftir að hún birtist á reikningnum þínum nema annað sé tekið fram í viðbótarskilmálum fyrir viðkomandi kynningartilboð. Þú getur séð kynningarinneignina og gildistíma á flipanum „Kynningar“ á innheimtusíðu Google Ads-reikningsins þíns hvenær sem er.
  • Tilboðið er háð auglýsingasamþykki, gildri skráningu og samþykki á stöðluðum skilmálum Google Ads-kerfisins.
  • Kynningarinneignin er ekki framseljanleg og ekki má selja hana eða láta hana í skiptum.
  • Google Ireland Limited má afturkalla tilboðið hvenær sem er og af hvaða ástæðu sem er.
  • Auglýsendur bera ábyrgð á kynningarinneigninni og mega ekki nota hana til að greiða skatta eða önnur gjöld. Auglýsendur vinna sér ekki inn kynningarinneign með því að greiða skatta eða önnur gjöld.
  • Ein kynningarinneign á hvern viðskiptavin.
  • Þú þarft hugsanlega að eyða lágmarksupphæð í auglýsingar og ganga frá greiðslu áður en kynningarinneignin birtist.
  • Notkun tilboðsins takmarkast hugsanlega við innheimtukosti fyrir sjálfvirkar greiðslur.
  • Ef gjaldmiðill Google Ads-reikninginn þíns er annar en gjaldmiðill kynningarinneignarinnar er raunveruleg upphæð eyðsluskilyrðanna og kynningarinneignarinnar hugsanlega háð gengisbreytingum erlendra gjaldmiðla.
  • Tilboðið gildir aðeins fyrir viðskiptavini með heimilisfang greiðanda á Íslandi.
  • Tilboðið rennur út 3 mánuðum eftir að efnið sem inniheldur afsláttarmiðann var fyrst birt eða á lokadagsetningunni á afsláttarmiðanum (ef hún er tilgreind).
  • Með því að nota afsláttarmiðann og/eða kynningarinneignina samþykkirðu þessa skilmála. Tilboðið gildir ekki þar sem það er bannað samkvæmt lögum.
  • Við biðjumst afsökunar á öllu lagalega fagmálinu!